Nýtt líf á Breiðhöfða

Á Borgarhöfðanum rís nú nýtt og spennandi íbúðahverfi þar sem nútímaleg hönnun mætir mannlífinu og nátturunni. Glæsilegar og fjölbreyttar íbúðir taka mið af þörfum ólíkra fjölskyldugerða og þeirra sem vilja njóta þæginda borgarlífsins – með þjónustu, verslun, menningu og útivist í næsta nágrenni.

ÍBÚÐIR

Borgarhöfði

Hverfið er skipulagt með það að leiðarljósi að öll helsta þjónusta sé í göngufæri. Þá tengist það helstu samgönguæðum borgarinnar. Stutt er í græn svæði, göngu- og hjólastíga auk þess sem almenningssamgöngur verða öflugar með fyrirhugaðri borgarlínu. Borgarhöfðinn býður upp á líflegt borgarumhverfi þar sem þægindi, gæði og framtíðarsýn fara saman.

Borgarhöfði – nýtt íbúðahverfi í mótun

Borgarhöfðinn gengur í gegnum mikla umbreytingu þar sem fyrrverandi atvinnusvæði þróast í heildstætt íbúða- og þjónustuhverfi. Deiliskipulag svæðisins er metnaðarfullt og miðar að því að skapa lifandi borgarhluta með fjölbreyttri þjónustu, verslun og menningu.

Nánari upplýsingar um þróun Borgarhöfðans má finna á borgarhofdi.is.

Borgarhöfði

Breidd í úrvali íbúða

Í húsunum verða alls 165 íbúðir af mismunandi stærðum og gerðum sem henta ólíkum þörfum og lífsstíl. Lögð er rík áhersla á vandaðan frágang íbúða. Allar íbúðirnar eru útbúnar loftræstikerfi með varmaendurvinnslu sem tryggir mikil loftgæði og þægilegt inniloftslag.

Í kjallara húsanna eru bílageymslur með einkastæðum og geymslum. Þá er sérstaklega vel hugað að hjólandi íbúum með rúmgóðum hjólageymslum sem tengjast beint við hjólastíga hverfisins.

Þakíbúðir með auknum gæðum

Á efstu hæðum húsanna verða glæsilegar þakíbúðir sem skera sig úr með auknum gæðum. Þar má finna rúmgóða þakgarða og möguleika á heitum potti – fullkomið rými til að njóta útsýnis, sólseturs og kyrrðar í miðri borginni.

Skoða íbúðir

Glæsilegar og tímalausar innréttingar

Íbúðirnar eru hannaðar með áherslu á tímalausa fegurð og gæði. Eldhús- og baðinnréttingar eru vandaðar og blöndunartæki valin úr hæsta gæðaflokki. Hér er ekkert til sparað og vel gætt að öllum smáatriðum.

Sýningaríbúðir

Breiðhöfði – hönnun og arkitektúr

Tvær öflugar arkitektastofur komu að hönnun húsanna við Breiðhöfða. Arkís arkitektar hönnuðu húsin við Breiðhöfða 9–13 en Nordicarch arkitektar sáu um hönnun húsanna við Breiðhöfða 15–35. Samspil ólíkra áherslna skapar heildstæða og áhugaverða götumynd.

Hönnun

Framkvæmdaraðili með ríka áherslu á fagmennsku

Að byggingu húsanna við Breiðhöfða 15–35 stendur Skuggi byggingarfélag. Fyrirtækið var stofnað árið 2011 og hefur komið að fjölmörgum verkefnum þar sem áhersla er lögð á vönduð vinnubrögð, gæði og fagmennsku. Verk Skugga má skoða á skuggi.is.

ÍBÚÐIR