Umhverfi og útivist

Breiðhöfðinn er staðsettur í miðju nýs borgarhverfis og er í einstakri nálægð við náttúruna. Stutt er í Elliðaárdalinn og Geirsnef með víðfeðmu neti göngu- og hjólastíga sem ná alla leið að Heiðmörk. Skjól af Esjunni eykur veðursæld og inngarðar húsanna snúa þannig að í þeim má njóta síðdegissólar yfir sumarmánuðina.

Samgöngur og borgarlína

Hverfið er vel tengt helstu umferðarlínum borgarinnar, með Sæbraut til vesturs og Ártúnsbrekku til suðurs. Fyrirhugað er að ein af aðalstoppistöðvum borgarlínu verði á Krossamýrartorgi, í næsta nágrenni við Breiðhöfðann, sem mun styrkja enn frekar tengingar við alla borgina.

Menning og mannlíf á Krossamýrartorgi

Krossamýrartorgi er ætlað að verða hjarta hverfisins – líflegt menningartorg með bókasafni, kvikmyndahúsi, kaffihúsum, verslunum og þjónustu. Þar er einnig gert ráð fyrir heilsurækt og heilsulind og aðeins fimm mínútna gangur er í heilsugæslu á Höfðanum.

Fyrir náttúruunnendur

Um hverfið verður net göngu- og hjólastíga og verður lögð áhersla á að græn svæði séu víða. Þá er bein tenging við Elliðaárdalinn og Geirsnefið þar sem borgarbúar njóta gjarnan útiveru.

Meðal áhugaverðra staða er Elliðaárstöð þar sem saga rafmagnsins í Reykjavík hófst. Þar eru einnig haldin námskeið, sýningar og hægt að leigja aðstöðu fyrir viðburði. Á sumardögum er upplagt að kíkja þar á leiksýningu hjá Leikhópnum Lottu eða bara njóta kaffibolla á kaffihúsinu Elliða.

Fyrir veiðimanninn er ekki hægt að fara styttra til þess að renna fyrir lax en veiðileyfi er hægt að kaupa hjá Stangveiðifélagi Reykjavíkur. Það er talið að Reykjavík sé eina höfuðborgin í heiminum sem hefur laxveiðiá innan borgarmarkanna.

Í nágrenninu er Árbæjarsafn þar sem má kynnast sögu borgarinnar og þróun samfélagsins í gegnum aldirnar. Það er einstakur ævintýraheimur fyrir fróðleiksþyrsta á öllum aldri.

Við tá Geirsnefsins er siglingaklúbburinn Snarfari með aðstöðu fyrir skútur og smábáta.

Hverfi í uppbyggingu – framtíðin mótast núna

Áætlað er að allt að 20.000 manns muni búa á Borgarhöfðanum þegar uppbyggingu lýkur. Með fjölbreyttri atvinnustarfsemi, öflugu menningarlífi og aukinni þjónustu mun hverfið verða lifandi og sjálfbær hluti borgarinnar – staður þar sem gott er að búa, starfa og njóta lífsins.

Fyrir ungmenni

Hinum megin við Vesturlandsveginn er Hitt húsið. Þar er aðstaða fyrir ungmenni frá 16-25 ára til að koma hugmyndum sínum á framfæri. Þá geta þau sinnt ráðgjöf og styrkt stöðu sína í daglegu lífi. Þar starfa jafnframt listhópar á ýmsum sviðum lista eins og leiklist, danslist og tónlist.