
Við hönnun á Breiðhöfða var lögð áhersla á vandaðar og tryggar lausnir m.t.t endingar bygginga. Útveggir bygginga eru einangraðir að utan sem lágmarkar kuldabrýr og eykur orkunýtni.
Gluggar eru vottaðir gæðaáltrégluggar frá traustum framleiðanda með reynslu af íslenskum aðstæðum.Til að tryggja þéttleika glugga í byggingum er hluti þeirra þrýstiprófaður að ísetningu lokinni.

Brunaþolinn öndunardúkur er settur undir álklæðningu og yfir útveggjaeinangrun. Öndunardúkur tryggir að einangrun haldi einangrunargildi sínu vegna þess að:
Þakfrágangur er viðsnúið þak, þ.e. tvöfaldur ábræddur þakpappi, XPS-einangrun og farg. Auk hefðbundins frágangs er drenandi dúkur settur undir einangrun og afrennslisdúkur ofan á hana. Hvort tveggja eykur gæði einangrunarinnar.

Á efstu hæðum húsanna verða glæsilegar þakíbúðir sem skera sig úr með auknum gæðum. Þar má finna rúmgóða þakgarða og möguleika á heitum potti – fullkomið rými til að njóta útsýnis, sólseturs og kyrrðar í miðri borginni.

Íbúðirnar eru hannaðar með áherslu á tímalausa fegurð og gæði. Eldhús- og baðinnréttingar eru vandaðar og blöndunartæki valin úr hæsta gæðaflokki. Hér er ekkert til sparað og vel gætt að öllum smáatriðum.

Borgarhöfðinn gengur í gegnum mikla umbreytingu þar sem fyrrverandi atvinnusvæði þróast í heildstætt íbúða- og þjónustuhverfi. Deiliskipulag svæðisins er metnaðarfullt og miðar að því að skapa lifandi borgarhluta með fjölbreyttri þjónustu, verslun og menningu.
Nánari upplýsingar um þróun Borgarhöfðans má finna á borgarhofdi.is.

Að byggingu húsanna við Breiðhöfða 15–35 stendur Skuggi byggingarfélag. Fyrirtækið var stofnað árið 2011 og hefur komið að fjölmörgum verkefnum þar sem áhersla er lögð á vönduð vinnubrögð, gæði og fagmennsku. Verk Skugga má skoða á skuggi.is.
Skoða meira